Persónuverndarstefna

Við hjá Unio leggjum ríka áherslu á persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga með fyllstu varúð. Persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og Almennar gagnaverndareglur (GDPR).


Í þessari stefnu útskýrum við hvaða persónuupplýsingar við söfnum, hvernig við notum þær, og hvaða réttindi þú sem einstaklingur hefur þegar kemur að persónuupplýsingum þínum.

Hver erum við?

Unio Digital ehf. kt. 411208-1680

Heimilisfang: Köllunarklettsvegur 1
Sími: 522-2222
Netfang:
unio@unio.is


Ef þú vilt senda skriflega fyrirspurn um meðferð persónuupplýsinga getur þú haft samband við persónuverndarfulltrúa hjá Unio á netfanginu: unio@unio.is


Hvað eru persónuupplýsingar?

Persónuupplýsingar eru allar upplýsingar sem hægt er að rekja til einstaklings, svo sem nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer.

Í lögum er einnig sérstaklega fjallað um viðkvæmar persónuupplýsingar. Þær geta meðal annars varðað kynþátt, þjóðernislegan uppruna, stjórnmálaskoðanir, trúarbrögð, lífsskoðanir og aðild að stéttarfélagi. Undir viðkvæmar persónuupplýsingar falla einnig heilsufarsupplýsingar, upplýsingar um kynlíf eða kynhegðun, erfðafræðilegar upplýsingar og lífkennaupplýsingar.

Hvernig notum við upplýsingarnar þínar?

Unio skuldbindur sig til að vinna persónuupplýsingar með lögmætum hætti og tryggja að þær séu ekki unnar í öðrum tilgangi en þeim sem upphaflega var tilgreindur.


Ef tilgangur vinnslu breytist munu skráðir einstaklingar vera upplýstir um það.

Persónuupplýsingum er aðeins safnað í skýrum og afmörkuðum tilgangi. Unio safnar aldrei fleiri upplýsingum en nauðsynlegt er til að veita viðeigandi þjónustu.


Upplýsingum kann að vera miðlað til vinnsluaðila, svo sem þjónustuveitenda, umboðsaðila eða þróunaraðila, en eingöngu í þeim tilgangi að veita þjónustu eða afhenda vöru sem þú hefur óskað eftir og samþykkt.

Unio skuldbindur sig til að gera viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi persónuupplýsinga þegar þær eru miðlaðar til slíkra aðila.


Með vinnslu upplýsinga er átt við notkun eða meðferð persónuupplýsinga, til dæmis í tengslum við þjónustuveitingu.


Hvaða upplýsingum söfnum við?

Unio leitast við að safna eingöngu þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita tiltekna þjónustu.

Almennt eru persónuupplýsingar aðeins vistaðar þegar þú veitir þær af fúsum og frjálsum vilja, til dæmis með því að fylla út eyðublöð eða hafa samband við okkur. Upplýsingarnar eru vistaðar til að geta veitt umbeðna þjónustu, efnt samninga, gætt lögmætra hagsmuna fyrirtækisins eða uppfyllt lagaskyldur.


Á vefsíðu Unio fer fram sjálfvirk söfnun á IP-tölum og grunnupplýsingum um vafra. Aðrar tæknilegar upplýsingar kunna einnig að skrást á netþjóni sem hýsir vefsíðuna. Þessi söfnun fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna Unio, til dæmis til að tryggja öryggi vefsíðunnar og verjast netárásum.

Varðveislutímabil upplýsinga

Persónuupplýsingar eru aðeins varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er, eða á meðan gilt varðveislutímabil stendur.

Varðveislutímabil kann að breytast vegna beiðna viðskiptavina eða lögmætra hagsmuna, til dæmis til að tryggja öryggi gagna eða í tengslum við lögfræðileg málefni.

Þinn réttur

Þú átt rétt á að hafa samband við persónuverndarfulltrúa Unio vegna vinnslu persónuupplýsinga á netfangið: unio@unio.is

Réttindi þín eru meðal annars:

  • Réttur til að fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga
  • Réttur til að takmarka vinnslu persónuupplýsinga
  • Réttur til að fá persónuupplýsingar afhentar öðrum ábyrgðaraðila
  • Réttur til að fá afrit af persónuupplýsingum
  • Réttur til að mótmæla vinnslu
  • Réttur til að fá persónuupplýsingum eytt
  • Réttur til að fá rangar eða ónákvæmar upplýsingar leiðréttar
  • Réttur til að taka samþykki til baka og stöðva vinnslu
  • Réttur til að leggja fram kvörtun til Persónuverndar

Í sumum tilvikum getur Unio ekki orðið við beiðni, til dæmis þegar fyrirtækinu ber skylda samkvæmt lögum til að varðveita upplýsingar. Í slíkum tilvikum verður beiðni hafnað. Einnig getur verið ómögulegt að verða við beiðni á grundvelli hugverkaréttar eða réttinda annarra aðila, svo sem vegna friðhelgi einkalífs.


Hafðu samband

Ef þú hefur spurningar eða vilt fá nánari upplýsingar um þessa persónuverndarstefnu skaltu hafa samband við okkur