Árangurssaga

18% tekjuaukning án þess að hækka auglýsingakostnað

Í byrjun árs 2025 leitaði íslensk vefverslun til Unio með skýra áskorun:

Að vaxa hraðar í gegnum samfélagsmiðla án þess að einfaldlega eyða meira í auglýsingar.

Fyrirtækið var þegar með sterkan grunn og stöðuga sölu. En möguleikinn var meiri. Spurningin var ekki hvort hægt væri að auka kostnað, heldur hvernig mætti ná meiri árangri úr hverri einustu krónu sem fór í auglýsingar.


Frá stöðugleika yfir í markvissa skölun

Við byrjuðum á ítarlegri greiningu á núverandi herferðum, markhópum og kauphegðun. Í stað þess að henda öllu upp í loft og byrja upp á nýtt lögðum við áherslu á að byggja ofan á það sem þegar var að skila árangri og fjarlægja það sem hafði takmörkuð áhrif. Með þeirri nálgun varð til skýrari mynd af því hvar raunveruleg tækifæri lágu.


Áherslan var lögð á að skerpa funnel uppbyggingu frá fyrstu kynningu að kaupákvörðun, þannig að hvert stig hefði sitt hlutverk og styddi næsta skref í ferlinu.

Samhliða því var komið á kerfisbundnu prófunarferli þar sem auglýsingaefni og skilaboð voru metin út frá raunverulegum gögnum fremur en tilfinningu.

Endurmarkaðssetning var síðan styrkt með markvissari nýtingu gagna, sem gerði okkur kleift að ná betur til þeirra sem höfðu þegar sýnt áhuga og auka líkur á umbreytingu.


Markmiðið var einfalt en agað: að bæta arðsemi áður en hugsað væri um aukinn kostnað. Þegar hver króna fór að skila meiri árangri varð skölun eðlilegt næsta skref, ekki áhættusöm ákvörðun.

2024 vs 2025

Mælanlegur árangur

Á aðeins einu ári breyttist myndin verulega. Án þess að auka auglýsingabudget náðist bæði aukin sala og meiri arðsemi, sem undirstrikar áhrif markvissrar bestunar. Kostnaðurinn hélst nánast óbreyttur á sama tíma og fjöldi pantana jókst um yfir 1.300. Tekjur hækkuðu um rúmlega 34 milljónir króna og arðsemi batnaði um tæp 19%. Niðurstöðurnar sýna að þegar gögn stýra ákvörðunum og hver króna er nýtt betur verður vöxtur bæði mælanlegur og sjálfbær.

Fjöldi sala

+11,1%

Tekjur

+18,0%

ROAS

+18,6%

Hvað gerði muninn?

Árangurinn kom ekki úr einni stórri breytingu heldur samspili margra smærri ákvarðana sem byggðu hver ofan á aðra. Við sköluðum eingöngu þær herferðir sem sýndu stöðug og jákvæð merki í gögnum og lögðum áherslu á markvissar prófanir á kreatívi og skilaboðum í stað þess að treysta á ágiskanir.


Samhliða því byggðum við upp öfluga endurmarkaðssetningu sem studdi við raunverulega kauphugsun neytenda og færðum fókusinn frá því að sækjast eftir meiri umferð yfir í að ná meiri gæðum í hverri heimsókn. Þessi agaða nálgun skapaði grunninn að stöðugri og sjálfbærri skölun.

Niðurstaða

Þetta case sýnir að skölun þarf ekki að þýða hærri kostnað. Hún byggist á skýrari stefnu, stöðugri bestun og agaðri framkvæmd þar sem gögn stýra hverri ákvörðun.


Þegar hver króna vinnur betur og arðsemin eykst samhliða vexti verður þróunin bæði hraðari og sjálfbærari. Vöxtur verður þá ekki tilviljun heldur bein afleiðing markvissrar og vel útfærðrar nálgunar.